Greiðslu hlekkir
Búðu til greiðsluhlekk og deildu honum hvar sem er — á vefsíðunni þinni, í tölvupósti, í SMS eða á samfélagsmiðlum. Virkar án forritunar.
Prófaðu þig áfram
Stilltu greiðsluhlekkina svo að þeir séu í stíl við þitt vörumerki, til að sjá dæmi, sláðu inn vefsíðuna þína og sjáðu hvernig útlitið á greiðsluhlekknum uppfærist í takt.
Prófaðu — sláðu inn slóðina þína
Stilltu hvaða reitir birtast á greiðsluhlekknum.
Það sem viðskiptavinurinn sér
Greiða til Sharp & Bold
1.000 ISK
Kortanúmer
Gildir til
CVC
Sharp & Bold
Hvernig greiðsluhlekkir virka
Búðu til hlekk
Búðu til nýjan greiðsluhlekk á stjórnborðinu. Þú velur hvaða svæði þú vilt biðja viðskiptavin um, t.d. nafn, heimilisfang, o.s.frv.. Þú getur jafnframt stillt hámarksnotkun á hlekknum eða gildistíma
Deildu hlekknum
Deildu hlekknum með viðskiptavinum þínum, t.d. með sms-i, tölvupósti eða vísaðu beint á hann frá vefsíðunni þinni.
Fáðu greitt
Viðskiptavinur opnar hlekkinn, slær inn kortaupplýsingar á öruggri Kling síðu og borgar. Greiðslan birtist strax á stjórnborðinu þínu.
Af hverju greiðsluhlekkir?
Einfalt, sveigjanlegt og auðvelt að byrja.
Afrita og deila
Búðu til hlekk, afritaðu hann og deildu honum hvar sem er. Engin forritun eða tæknileg uppsetning nauðsynleg.
Ein eða fleiri vörur
Ein vara eða margar. Áskriftarvörur og/eða stakar vörur á sama greiðsluhlekk fyrir sveigjanleika.
Örugg greiðsla
PCI-samræmt. Kortaupplýsingar fara aldrei í gegnum þinn þjón. Hýst á Kling.
Farsímavænt
Kling virkar á öllum tækjum. Viðskiptavinir geta greitt með símanum.
Allt á einu stjórnborði
Gott yfirlit yfir greiðslur, notkun á greiðsluhlekkjum og stöðu greiðslna á stjórnborðinu þínu.
Byrjaðu með greiðsluhlekkjum
Búðu til fyrsta greiðsluhlekkinn þinn á stjórnborðinu og sjáðu hversu auðvelt það er að byrja.